Víđir Elís ArnarssonArnar Víđir Jónsson
Ætlaði að vera löngu búinn að skrifa færslu hérna en við skírðum engillinn okkar 2 febrúar í Reykholtskirkju og var það séra Geri Waage, hann fékk nafnið Víðir Elís, við héldum svo góða veislu á Hálsum á eftir, vorum rosalega ánægð með allt og þökkum öllum kærlega sem komu fyrir okkur,það fara að koma myndir inn á síðuna hjá krökkunum, en við erum búinn að sameina þær og er slóðin http://heidrunogvidir.barnaland.is/
meira seinna
Góða nótt
Arnar og Gugga
Já Gleđilegt nýtt árArnar Víđir Jónsson
jæja þá eru hátíðin að verða búin og allt fer að vera venjulegt aftur, ég fer að vinna núna eftir helgina en þá er fæðingarorlofið búið eða 1 mánuður af því, en ég á 2 eftir sem ég tek einhvern tíman seinnaþetta eru bara búinn að vera góð jól, héldum jólin saman hérna heima í fyrsta skipti og það var bara nice ekkert verið að fara og í einhverju stressi, tengdó sá um að elda jólamatinn, sem var svínahamborgarahryggur með öllu því sem er með honum, og var þetta bara mjög vel gert hjá henni, mætti halda að ég hefði gert það sjálfur
Pakkaflóðið var alveg gífurlegt undir trénu og það tók alveg sinn tíma að taka þá alla upp, en það voru bara allir ánægðir með það sem þeir fengu, við Gugga gáfum hvort öðru sitthvora cintamani peysuna en það fyndna við það að við höfðum ekki hugmynd hvað við værum að gefa hvort öðru
Við eyddum svo áramótunum hjá systir hennar Guggu í Kópavoginum og var það bara virkilega gaman
sjáumst svo hress á nýju ári
endilega kíkkið svo og kvittið á síðurnar hjá krökkunum
http://heidrunhulda.barnaland.is/ http://barnaland.is/barn/62899/
kveðja frá fjölskyldunni á Borgarbrautinni
Prinsinn kominn :)Arnar Víđir Jónsson
Jæja þá er það búið, hann ákvað loksins að láta af þrjóskunni og kom í heiminn kl 12:50 í gær (5 Desember) hann var mældur 17 merkur og 56 cm ágætis stærð allavega miða við hvað við vorum búinn að reikna með og Hafdís ljósmóðir var búin að tala um, en allavega þá gekk þetta mjög fljótt fyrir sig. Við fórum á skagann um 2 leytið á þriðjudagskvöldið og Gugga fór í skoðun þá, við vorum síðan látin fá herbergi í sjúkrahúsíbúðunum og vorum þar um nóttina. Við vöknuðum um hálf tíu og þá skrapp ég útí búð og þegar ég kom til baka 5 mínútu seinna þá var Gugga kominn með mikla verki og við fórum beint uppá fæðingadeild eða um hálf 11 og þ´fór allt á fullt og barnið var fætt 12:50
Það var alveg ólýsanleg tilfinning að vera viðstaddur þetta og alveg magnað að fá að klippa á naflastrenginn og fá hann svo í fangið 10 mínútna gamlan, þetta er bara æðilegt :)
Við vorum svo bara í svítunni á fæðingadeildinni í nótt og fengum svo að fara heim seinnipartinn í dag því allir voru svo hressir og allt gekk vel
maður er ekki alveg kominn niður úr skýjunum ennþá og gerir það örugglega ekki strax
meira seinna
kær kveðja
Arnar ( mjög montinn pabbi :) )
Ekkert ađ gerastArnar Víđir Jónsson
Góðan dagbumbukrílið ætlar að láta eitthvað bíða eftir sér en Gugga er kominn einn dag framyfir og ekkert bólar á krílinu, við erum orðin alveg úper spennt eins og gefur að skilja og allt er orðið klárt fyrir krílið.
Það koma fréttir þegar að það kemur í heiminn
p.s. búinn að setja Emilíu rós inná kubbinn fyrir þig Milena
Hć Hó og jibbý jeyArnar Víđir Jónsson
komiði öll sæl og blessuð ![]()
Jæja þá fer litli engillinn að koma í heiminn einungis 15 dagar í settan dag þannig að þetta fer alveg að koma, enda er spenningurinn orðinn verulega mikill. en meira um það þegar nær dregur eða þegar krílið er komið í heiminn
því næst er komið að máli málanna, við erum búinn að kaupa okkur lóð í kvíaholti í Borgarnesi ásamt Gumma victorystone og Ingu og ætlum við að reisa okkur parhús þar í sameiningu, það er búið að gera klárt til þess að byrja á grunninum en það var nú frekar mikið vesen í kringum það og er það bæjarráði mest að kenna hvernig þeir unnu að sínu verki, en það er loksins að klárast og vonandi verður hægt að byrja á grunninum um helgina.
Á Föstudaginn síðasta fluttu Gummi og Inga í Borgarnes og vorum við búinn að vera að hjálpa þeim í síðustu viku og svo kíktum við til þeirra um kvöldið í heimsókn í rólegheitum, en það endaði með smá hasar, því að það eru Litháar á efri hæðinni eða voru :) það var þannig að Gugga og Inga voru að fara útí sjoppu þá voru þeir fyrir utan blindfullir og reyndu að fá þær til að skutla þeim á barinn en þær neituðu en þá ætluðu þeir bara inní bílinn en sáu að það var ekki pláss, Gugga hringdi þá í mig og bað mig að læsa bílnum okkar og þegar þeir sjá það þá biðja þeir okkur Gumma að skutla sér en við segjum nei því að við vorum að sötra bjór og þá varð einn af þeim alveg brjálaður og hótaði öllu illu og hendir bjórdós í útidyrahurðina og fer svo inn og kemur svo út með hníf og ætlaði að hóta okkur með honum en þá vorum við búinn að hringja á lögguna og fórum bara inn og biðum eftir henni, þegar hún kemur þá talar hún við okkur og fer svo upp og talar við þá og þeir láta öllum illum látum, en það endar með því að þessi rugludallur er tekinn og settur í steininn. Þessir helvítis útlendingar eru bara til leiðinda hér og það ætti að banna þá. það endaði svo með því að þeim var hent útúríbúðinni og færðir í sumarbústað uppí Skorradal og félagar hans voru svo brjálaðir út í hann að þeir hentu honum útúr bústaðnum í nótt og látinn sofa úti, og var rekinn heim í dag :)
þetta er svona í grófum dráttum.. einnig inná www.skessuhorn.is
Ef einhverjum langar að kaupa íbúð, þá erum við búinn að setja hana á sölu inná domus.is :)
Einnig eru til sölu Wolkswagen Golf 2001 og Subaru Legacy 2006 algjörir gullmolar
En annars bara áfram Manchester United
kem með færslu vonandi fljótlega
Arnar
langt um liđiđ og ćđslegar fréttir :)Arnar Víđir Jónsson
Góðan daginn gott fólk, héðan er bara allt gott að frétta og allt gegnur mjög vel, aðalfréttin er nú samt að kjellinn er að verað pabbi í lok Nóvember og erum við öll í skýjunum yfir því
þeir sem vilja sjá eða fylgjast með geta farið inná http://barnaland.is/barn/62899/
Annars gengur allt sinn vanagang, erum bara bæði að vinna á fullu ég í smíðinni og Gugga er í leikskólanum á Hvanneyri.
Við erm að vísu búinn að gera ýmislegt uppá síðkastið, tildæmis fórum við til Flateyrar í lok mai í fermingu hjá frænda Guggu og svo fórum við aftur helgina eftir á sjómannadaginn sem var bara virkilega gaman, þar var okkur boðið í grill hjá hjónum á Flateyri og það var frekar fyndið því að kallinn er bróðir mömmu hans Samma okkar, það var frekar fyndið þegar það komst upp, en við fórum svo á ball eftir að við vorum búnir að sötra koníak og kaffi allt kvöldið
það var bara alveg merkilega gaman á þessu balli og maður kynntist svona smá af fólki, þetta var frekar mikið fyllerý og ég held að Gugga hafi verið eina manneskjan sem var edrú ![]()
Daginn eftir var svo fylgst með sjómannadeginum og öllu sem því fylgir og var bara gaman að fylgjast með því, á mánudeginum fórum við svo heim og tókum Tengdó með því að þær voru svo að fara til Skotlands á miðvikudeginum, það er að segja Gugga, Heiðrún og Tengdó,
Ég var svo einn heima í viku og smíðaði einmitt rúm fyrir Heiðrúnu á meðan og setti það upp og það var sko bros allan hringinn þegar hún kom heim og sá það. Gugga keypti líka fullt af dóti og fötum á okkur öll, og einnig fullt af nammi ![]()
Það var líka virkilega gott að fá hana heim því að við söknuðum hvors annars virkilega mikið og höfum ákveðið að fara ekki svona lengi í burtu frá hvort öðru aftur ![]()
Þetta er svona það helsta,
með kveðju
Arnar
Langt um liđiđ :)Arnar Víđir Jónsson
Ég hef svona ekki alveg verið að nenna að blogga í einhvern tíma en allt verður einhvern tíma fyrst ![]()
Annars er allt fínt að frétta, kominn með kærustu og hún býr einmitt hérna hjá mér ásamt dóttur sinni sem er þriggja ára
bara gaman að því, við erum svo líka kominn á glænýjan Subaru Legacy Lux snilldar kerru,
Annars er maður bara að gera það sama vinna og vera heima og hafa það gott
horfa á fótbolta um helgar og svona
En vona að þíð hafið það sem allra best og óska öllum sem koma hingað Gleðilegs árs og gangið hægt inní nýja árið, eða þið svosem ráðið því ![]()
Heyri í ykkur
Adios
ARNAR
Leggjiđ hjálparhönd ef ţiđ getiđArnar Víđir Jónsson
"Munið kæru vinir margt smátt gerir eitt stórt.
Opnaður hefur verið söfnunarreikningur fyrir unga konu, einstæða með þrjú
börn á aldrinum 3-11 ára.
Hún greindist með ólæknandi krabbamein í ristli og hefur það nú dreifst yfir í lifrina eftir brottnám ristilsins. Hún berst nú fyrir lífi sínu í lyfjameðferð á LSH þar sem reynt er að minnka útbreiðslu sjúkdómsins í von um að hægt verði að gera aðgerð sem myndi lengja líf hennar í ótiltekinn tíma.
Að sjálfsögðu gerast kraftaverkin enn og við biðjum öll fyrir henni sem hana þekkjum og þætti okkur óendanlega vænt um, ef þið gætuð haft hana í bænum ykkar því vegir Guðs eru
órannsakanlegir.
Það eru vinir og vandamenn sem standa að þessari söfnun þar sem öll hennar orka fer nú í að berjast við þennann óvæga sjúkdóm og það er bæði dýrt og erfitt...... þess vegna biðlum við til ykkar um að létta henni baráttuna því nóg er hún erfið en að þurfa að berjast við peningahliðina líka...........
kærar þakkir og guð blessi ykkur öll........og við biðjum ykkur að hafa í huga að margt smátt gerir eitt stórt.
Vinsamlegast áframsendið þessa hjálparbeiðni til allra sem þið getið
Vinir og vandamenn
Söfnunarreikningur
Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir.
Banki: 0525-14-102510
kt: 090876-5469
http://www.123.is/crazyfroggy/
Nokkrar stađreyndir um íslendinga!!!Arnar Víđir Jónsson
+15°C
Fólk á Spáni notar kuldaúlpur og þykka vettlinga. Íslendingar liggja í sólbaði.
+10°C Frakkar reyna af vanmætti að fá kyndinguna í gang. Íslendingar planta blómum í garðana sína.
+5°C
Bílar á Ítalíu neita að fara í gang.
Íslendingar fara að gamni sínu í bíltúr á Saab druslunni.
0°C
Eimað vatn frýs.
Vatnið í Hvítá verður aðeins þykkara.
-5°C
Fólkið í Californíu frýs næstum til dauða.
Íslendingarnir grilla í síðasta sinn áður en veturinn skellur á.
-10°C
Bretar byrja að kynda húsin sín.
Íslendingar byrja að nota langerma boli.
-20°C
Götusalar byrja að flýja frá Mallorca.
Íslendingar enda miðsumarshátíðina. Haustið er gengið í garð!
-30°C
Grikkir deyja úr kulda og hverfa af yfirborði jarðar.
Íslendingar hætta að þurrka þvott úti.
-40°C
París byrjar að gefa eftir kuldanum.
Íslendingar standa í biðröð við pylsuvagnana.
-50°C
Ísbirnirnir byrja að flykkjast burt frá Norðurpólnum.
Íslenska landhelgisgæslan frestar björgunaræfingum, í von eftir alvöru vetrarveðri.
-60°C
Mývatn frýs.
Íslendingar leigja sér spólu og halda sig inni við.
-70°C
Jólasveinninn heldur í suðurátt.
Íslendingarnir verða pirraðir því þeir geta ekki geymt brennivínið sitt úti.
Íslenska landhelgisgæslan setur í gang björgunaræfingar.
-183°C
Örverur í mat lifa ekki af.
Íslenskar kýr kvarta yfir handköldum bændum.
-273°C
Öll atóm staðnæmast vegna kulda!
Íslendingar byrja að tala um að það sé kalt úti.
-300°C
Helvíti frýs!
Ísland vinnur Eurovision!
Það er spurning ![]()
Kveðja
Arnar
dálítiđ skondiđ :)Arnar Víđir Jónsson
Skipstjóri í afleysingum.....
Hann var í fríi og lá í landi
að leysa af heima var enginn vandi,
konan var að því komin að fæða
og hvergi um húshjálp að ræða.
En hvað munar karlmann um kerlingarstörfin
þó kannski sé stundum fyrir þau þörfin?
Konan var heima og hafði engu að sinna
nema hugsa um krakka, það er ekki vinna.
Hún sagði: "Elskan þú þarft ekkert að gera,
aðeins hjá börnunum heima að vera,
ég er búin að öllu, þvo og þjóna,
þú þarft ekki að bæta, sauma eða prjóna.
Matur er útbúinn allur í kistunni,
það ætti að duga svona í fyrstunni,
aðeins að líta eftir öngunum átta
ylja upp matinn og láta þau hátta."
Nú skyldi hann hafa það náðugt og lesa
og ná sér í ærlegan skemmtipésa.
Hann var ekki sestur og var nokkuð hissa
er vældi í krakka: "ég þarf að pissa."
Vart þeirri athöfn var að ljúka
er veinaði annar: "Ég þarf að kúka"
Þarna var enginn einasti friður
ef ætlaði hann að tylla sér niður.
Dagurinn leið svo í sífelldum önnum
sem ei voru bjóðandi mönnum,
þvílikt og annað eins aldrei í lífinu
útstaðið hafði hann í veraldarkífinu.
Ölduna stíga í ósjó og brælum
var ekkert hjá þessu, það kallaði hann sælu,
en þeytast um kófsveittur skammtandi og skeinandi
skiljandi áflogaseggina veinandi!
Ef eitt þurfti að éta varð annað að skíta
og engin friður í bók að líta,
en hún sagði: "Elskan, þú þarft ekkert að gera
aðeins hjá börnunum heima að vera."
Nú voru krakkarnir komnir í rúmið,
Kyrrlátt og sefandi vornætur húmið
seiddi í draumheimana angana átta
en ekki var pabbi farinn að hátta.
Hann stóð þarna úfinn, úrvinda og sveittur
yfir sig stressaður, svangur og þreyttur,
og horfði yfir stofuna: "hamingjan sanna
hér á að teljast bústaður manna.
"Það skyldi hann aldrei á ævinni gera
í afleysingu slíkri sem þessari vera,
þó væri í boði og á þvi væri raunin
að þau væru tvöfölduð skipstjóralaunin."
En þetta á konan kauplaust að vinna
og kallað að hún hafi engu að sinna
af daglangri reynslu hans virtist það vera
að það væri stundum eitthvað að gera.
Áfram með störfin ótt líður tíminn
Æ" aldrei friður nú hringir síminn,
halló, var sagt, það er sætt ég túlka,
þér er sonur fæddur og yndisleg stúlka.
Hann settist á stól og fann til svima og klígju,
hvað sagði hún að krakkarnir væru orðnir tíu."
Ég þarf að taka til öruggra varna,
ég ákveð á stundinni að hætta að barna.







